miðvikudagur, apríl 18, 2007

Birnirnir þrír og Brooke Fraser

Nú er farið að hausta hjá okkur og daginn tekinn að stytta. Sem betur fer erum við með hitapumpu og kamínu til að halda hita á okkur í nýja húsinu.
Það er allt gott að frétta af okkur, nóg að gera hjá Svövu í skólanum og mér í vinnunni. Birna Líf getur ekki beðið eftir að byrja í nýja skólanum og núna eru innan við 2 mánuðir þar til hún verður loksins ,,skólastelpa" eins og hún er búin að vera að bíða eftir í langan, langan tíma.
Helgin var þokkalega viðburðarrík hjá okkur, sérstaklega sunnudagurinn. Við fórum í s.k. ,,cushion" theatre á barnaleikritið um birnina þrjá og Gullbrá.....,,the true story" Allir komu sem sagt með púða með sér til að sitja á þar sem allt fer fram í einum litlum sal. Við sátum því á fremsta bekk eða púða á meðan á leikritinu stóð. Árna Kristni fannst þetta mjög áhugavert og sat ósköp stilltur í um hálftíma en nennti síðan ekki meiru. Birna Líf var hins vegar alveg hugfangin af þessu og fékk eiginhandaráritanir frá litla birni og Gullbrá eftir sýninguna. Þetta var mjög gaman og fullt af tækifærum til að standa upp og teygja úr sér og dansa með leikurunum.
Um Kvöldið fórum við Svava svo á tónleika með Brooke Fraser, sem er NýSjálensk stórgóð söngkona. Tónleikarnir voru mjög skemmtilegir og höldum við töluvert (meira) upp á þessa tónlistarkonu eftir tónleikana. Hún er greinilega mjög góð alhliða tónlistarkonu og syngur alveg ótrúlega vel. Hér er linkur á heimasíðuna hennar http://www.brookefraser.com/ fyrir áhugasama. Biðjum að heilsa í bili og setjum inn nýjar myndir á næstu dögum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað!!! Engin hitaveita þarna á NZ?
Asskoti eru þeir eh aftarlega á merinni.

Annars gaman að heyra að allt gott sé að frétta af ykkur.

Hmm ég held ég sleppi því að kaupa diskinn 'ennar:) Not my cup of tea.