sunnudagur, apríl 08, 2007

Páskar 2007



Undanfarna daga höfum við verið að undirbúa páskana. Birna Líf er mjög spennt og leggur heilmikið á sig til þess að allt verði til búið fyrir páskana svo að Páskakanína komi nú örugglega til okkar með páskaegg. Húsið er allt skeytt með gulum blöðrum og svo settum við hvítaseríu í grein sem stendur inni í stofu skreytt með gulum slaufum. Í gærkveldi settum við svo disk með tómat og vínberjum út fyrir kanínuna (áttum ekki gulrótt) og svo var beðið með mikilli eftirvæntingu. Birna Líf vakti mig samviskusamlega kl 6:30 í morgun til þess að við gætu athugað hvort kanína hefði komið , en því miður urðum við að bíða eftir Hilmar sem var á næturvakt og kom ekki heim fyrr en 9:30. En sem betur fer hafði kanínan vit á að koma inn með nokkur pínulítil egg, sem var þó svolítil sárabót. En loksins þegar Hilmar kom æddum við út í garð að leita. Kanínan hafði hugvitsamlega merkt egginn með mynd af okkur (sem hún hafði líklega fundið á bloggsíðunni okkar :) og voru gríðaleg fagnaðarlæti. Það er nokkuð öruggt að ef einhver var ekki vaknaður í Lyttelton áður en við fórum út í garð þá var hann það nú.

Í kvöld ætlum við að hafa dádýrasteik , grillað ala Hilmar og Ingó ætlar að kíkja til okkar í mat.

Að lokum óskum við öllum gleðilegra páska

2 ummæli:

Ingólfur Kolbeinsson sagði...

Takk kærlega fyrir mig, ala Hilmar og Svava alltaf mjög gott.

Kv.Ingólfur

p.s Þurfm bara að fara að ná í meira kjöt svo við eigum örugglega nóg fyrir næstu jól.

Nafnlaus sagði...

flott páskahátíð, næstum eins og jólin :)
kv.
ásdís